29.02.2012 00:08

Dagbók

28 febrúar er liðinn

Ég vaknaði snemma og borðaði morgunmatinn hálf sofandi. Skoðaði svo tölvuna en ég hefði ekki slökkt á henni áður en ég fór að sofa. Athugaði póstinn minn og ekkert markvert í honum, ja heimurinn var jú sofandi enn á Íslandi.

Slökkti á tölvunni og lagði mig aftur, með slæmri samvisku. Alltf sama samviskubitið.

Hef ekki enn losnað við að finnast ég sé að svíkjast um.

Hvað í ósköpunum hef ég gert af mér í fyrra lífi? Get aldrei slappað af og verið bara ég sjálf. Enda var ég orðin 56 ára þegar ég loks var frjáls og óháð.

En í morgun gerði ég húsverkin og prjónaði aðeins. Sendi Þóði hamingjuóskir í tölvupósti, vegna þess að ég vissi ekki hvort hann mundi vilja koma til dyra ef ég bankaði uppá.

Græjaði nokkur bréf og hringdi í bókhaldsskrifstofuna okkar og fann að slælegri hjálp sem þeim er annars borgað fyrir. Hringdi í Alþjóðahúsið og ahugaði um túlk ef til þess yrði að grípa varðandi vandamál sem tengjast erlendum íbúum.

Fékk húsfélagsreglurnar og bréfin á réttu tungumáli og fór niður með hin bréfin til að láta fara með þau í póst.

Prentaði allt út sem þurfti og og pantaði Herbalife fyrir 101 þusnd. Og komst svo að því að það var til einskis. En sama er mér þetta er þá skammturinn minn fyrir árið og ég dett niður í 46%    Varla lengur niður!

Setti mér það mark að klára bolinn á vestinu hans Ingþórs í dag og það tókst. Saumað axlarsaumana og setti uppá hringprjón annan handveginn.

Tók aðeins hlé um mitt kvöldið og skrapp til Þórðar. Afmælisdagurinn hans hafði verið skemmtilegur og vinir hans dekrað verulega við hann. Það var gaman að spjalla, svona eins og  gamla daga. Verst að það var ég sem kynnti þá Bjössa. Og eftir það var ég algjört aukaatriði og jafnvel fyrir.

Svo ég hef dregið mig í hlé, eins og ég geri alltaf, í stað þess aðberjast fyrir mínu. Og þarna var um góða vináttu að berjast og ég lét hjá líða.

Hvenær ætli mér lærist að berjast fyrir því sem mér finnst dýrmætt. Þetta er samt flestum fkomendum mínum meðfætt.

Tók peysuna hans með upp og gerði viðgöt sem voru á bakinu. Hún er annar svo slitin að það eru alveg að koma göt á olnboganna. Svo ég svona gerði ekki eins vel við og ef þetta hefði verið sparipeysa.

 

Lokað fyrir athugasemdir

27.02.2012 21:42

Dagbók

Ég leyfði mér að sofa út í morgun. é á orðið auðveldara með aðð vakna á morgnanna og sofna síður svona nærri því yfir morgunmatnum eins og í haust og vetur.

Þetta er alveg frábært. Næst er að geta komið mér að einhverju verki,laga til, prjóna, eða fara út að ganga fyrir hádegi.

Það er undarlegt að ég get ekki fest hugann við prjón fyrr en eftir ca 17:00 á daginn. og kvöldin eru ekki eins drjúg við prjónið og var í vetur. Og ég prjóna ekki frameftir nóttu eins og í desember.

Sennilega er þetta merki um að ég sé farin að slaka á. Pressan að ljúka við það sem ég ætlaði mér var mikil fyrir jólin. Og ég náði því ekki alveg. en næstum því.

Núna ætla ég að snúa mér að því að prjóna á sjálfa mig. þegar ég hef lokið við það sem ég er byrjuð á handa sonarsonum og litla langömmu stráknum honum Róberti Hannesi.

Ég hef lítið hugsað um stjórnmál, þennan vetur. Hann hefur farið í mín peningamál. Vonast ég til að geta staðið við það sem ég ætla mér og gott betur.

Er aðeins farin að vinna við að gera við föt og svo próna fyrir aðra. Þetta með viðgerðu fötin gefur lítið í aða hönd, ennþá. En kannski gæti þetta verið vaxtarsproti að vinnu. Ég þarf að kaupa saumarvélarlíu eftir mánðarmótin og athuga með buxnaefni og snið.

Skoða svo hvort ég geti ekki tekið snið af grænu buxunum, til að sauma eins, og þá úr teygjuefni  eða velúr. Það er æðislega gott að vera í velúr. Og kannski sauma peysu við.

Söngæfing í dag, og ég finn mér til gremju að þa er ekki að gera sig að ævar bara á mnudögum. Ég er alls ekki eins vel æfð og áður. Hvaða tími er þeta líka að hafa ævingar kl 12:30 á daginn. Þá er ég uptekin við að vera í sjúkraþjálfun. Mér hefur farið eftur frá því í haust. Allt vegna vandræðanna sem ég varð fyrir hérna yfir í Æ 6  á leiðinni í klippinguna.

Lokað fyrir athugasemdir

24.02.2012 23:32

Skáldsaga

Að missa hluta f lífi sínu

 

Það er hægt á margan hátt.

Sumir loka sig inni og þora ekki að taka þátt í lífinu utan heimilis.

Aðrir verða veikir en rayna samt að lifa einherju lífi.

Enn aðrir slasast og missa af því að fylgjast með sínum jafnöldrum, börnum, barnabörnum og kannski missa þau heimili, vegna afneitunar makans við aðstæðurnar. Þá er illa komið

Öllum hinum er vorkennt, og þau heimsótt og börnin eru sérstaklega umhggjusöm.

En sá sem er veikur, slasaður, kvalinn á sál og líkama. og forsmáður af maka sínum, fær enga meðaumkun eða litla og þau sem eru eða voru í hans sporum... fyrir x árum, stíga ekki fram, til að vekja ekki upp sögu sína sem er aðeins farið að hula yfir.

 

Svona saga fyrir svefnin fyrir þá sem eru svo óheppnir að finna þessa bloggsíðu, sem vill vera falin.

Lokað fyrir athugasemdir

11.02.2012 16:10

Skáldsaga

Einu sinni var ung stúlka. Bara táningur. Hún var í skóla og ætlaði sér margt í lífinu. Kannski giftast.. einhvern tíman en all ekki fyrr en hún væri orðin fullorðin.

Eitt sunarfríið langaði hana að vinna utan við Reykjavík og helst að leigja herbergi en ekki búa hjá fjölskyldunni, hvorki skyldri né óskyldri.

Hún hafið síðust 3 sumur unnið í borginni, tvö sumur í fiskvinnu og eitt við verslunnarpróf.

En sveitin hafði alltaf heillað, alveg frá barnæsku. Svo fór að hún var farin að vinna við garðyrkjustörf stutt frá Reykjavík og gat teki áætlunnarbíl heim um helgar ef hún vildi. ún vildi það fyrstu helgarnar, en svo kynntist hún hinu uga fólkinu sem vann þarna og helgarnar fóur í að skemmta sér.

en fór með þvotinn sinn heim öðru hvoru og foreldra hennar voru bara ánægð með hve henniféll þetta starf. Yfirmaðuinn var líka vinur pabba hennar. Og hefði látið þau vita ef skemmtanir eða drykkja væri í gangi. Það var aldrei

 

Lokað fyrir athugasemdir

28.01.2012 20:51

Samfylkingin

emoticon Samfylkingin er ótrúleg.

Það er rétt eins og hún lifi í annari veröld.

Mér dettur bara í hug Ástríkur og félagar
Lokað fyrir athugasemdir

25.01.2012 17:37

Snjór og meiri snjór

emoticon snjókoma í dag...aftur. og veðurspáin slæm. Verri samt fyrir norðan og vestan.
Ég er innilokuð með bílinn og mig líka. Húsið ekki á kafi í snjó, en ég sem hef komist allt á bílnum mínum frá því ég flutti til höfuðborgarinnar er eins og drukkin manneskja í hálku, þegar ég rambaði um götur borgainnar ó gær. hjólför eftir aðrar stærðir af bílum, urðu til þess að minn bíll steypti stömpum, og rann til og frá og lét illa af stjórn. Um tíma var ég ekki viss um að styrið væri í sambandi við framhjólin.
þegar heim kom, um kl 1300 þá var orðið svo ófært á bílastæðinu að góðir grannar ýttu bílnum mínum inní stæðið sitt. já hann á sitt eigið stæði með 4 öðrum.

Á morgun á ég stfnumót við augnæknir minn. En geri ekki ráð fyrir að mæta.

Hvort er betra að vera lokaður af heima hjá sér með bílinn eða á bílastæði við einhverja lækna og verslunnarmiðstöðina?
Lokað fyrir athugasemdir

22.01.2012 20:16

Atburðir liðinnar viku

emoticon Velkomin á bloggsíðuna mína. Er að prufa þennan bloggvef núna ókeypis í 30 daga. Ef vel takst til þá verður þetta aðalbloggið mitt og sennilega loka ég hinum.
En það kemur í ljós.

Síðasta vika var viðburðarrík að því leiti að nokkrir alþingismann urðu sér til skammar. Þeir gátu og geta ekki ennþá takið því að lúta í lægra haldi fyrir meirihluta greiddra atkvæða. Því nokkrir félagar þeirra greiddu atkvæði þvert á það sem flokksforustan var búin að ákveða.
Í heiti sem allir sem setjast á alþingi, stendur að hver og einn eigi að greiða atkvæði samkvæmt sinni samvisku.
Svo hvers er þá sökin?
Lokað fyrir athugasemdir
  • 1

Eldra efni

Nafn:

sjs

Staðsetning:

111

Um:

Íslendingur sem elskar landið sitt. viðurkennir aldrei ranglætið og reynir eftir megni að hjálpa til við að gera þjóðfélagið betra en það er 2012

Tenglar